
Fyrirtæki:
Skaftfell hefur um langan tíma sérhæft sig í brunaviðvörunarkerfum og hefur allt frá upphafi selt búnað frá Cerberus. Cerberus voru fyrstir á markað með brunaviðvörunarkerfi og hafa verið fremstir í heiminum á þessu sviði frá fyrstu tíð. Í dag er það Siemens sem státar sig af því að bjóða upp á Cerberus og tengir nafn sitt við þetta fræga merki.
Þau brunaviðvörunakerfi sem við bjóðum upp á eru einkum seld til fyrirtækja en þó einnig í minna magni til einstaklinga.
Einstaklingar:
Skaftfell selur staka reyk- og hitaskynjara fyrir heimili. Sá möguleiki er að sjálfsögðu fyrir hendi að hægt er að tengja ákveðna skynjara við stærri kerfi ss. innbrotavarnarkerfi og fleira.
Nánari upplýsingar fást hjá ráðgjöfum Skaftfells í síma 588-9020.

|