
Myndavélakerfi er einföld og sniðug lausn á öryggismálum. Undanfarin ár hefur þróun þessara kerfa verið í hámarki og möguleikarnir eru því orðnir all fjölbreytilegir. Með myndavélakerfum er á einfaldan hátt hægt að vakta hin ýmsu húsakynni og/eða svæði utandyra.
Sá búnaður sem þarf til eru myndavélar, upptökubúnaður og skjár en einnig er hægt að nýtast við tölvutækni og jafnvel fjartengingu gegnum netsamband og fylgjast þannig með fjarri umræddum stað.
Fjöldi myndavéla ræðst af stærð og hönnun í hverju tilviki fyrir sig.
Nánari upplýsingar fást hjá ráðgjöfum Skaftfells í síma 588-9020.

|