
Skaftfell ehf. var stofnað árið 1968 af Þorgeiri B. Skaftfell. Fyrirtækið var fyrst íslenskra fyrirtækja til að selja og setja upp ýmiskonar öryggisbúnað og hefur verið í fararbroddi alla tíð síðan. Fyrsta brunaviðvörunarkerfið var sett upp í Faxaskála í miðbæ Reykjavíkur.
Fyrirtækið hefur sérhæft sig á sviði brunavarnakerfa, aðgangsstýrikerfa, innbrotaviðvörunarkerfa, eftirlitsmyndavéla ásamt ýmsum öðrum búnaði og lausnum, fyrir bæði fyrirtæki og einstaklinga.
Starfsmenn fyrirtækisins eru allir menntaðir rafeindavirkjar, rafvirkjar, tölvu-og upplýsingatæknifræðingar með mikla reynslu að baki.
Fyrirtækið hefur til lengri tíma verið staðsett í Sundaborg 1 í Reykjavík en flutti starfsemi sína vegna þrengsla í Sundaborg 3 í ágúst 2008.

|